InfoBedingungenDatenschutzKontakt
 
Wird aktualisiert
Frelsi og fullveldi

Frelsi og fullveldi

Veröffentlicht: 2024-11-15
© 2025 Málfundafélagið frelsi og fullveldi
Frelsi og fullveldi - QR Code
13 Folgen
Audio
Anhören auf Apple Podcasts
13 Folgen
Audio
Anhören auf Apple Podcasts
Veröffentlicht: 2024-11-15
© 2025 Málfundafélagið frelsi og fullveldi
Aktuelle Folge
Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis

Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis

Länge: 2:04:26
Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 4. nóvember 2024 en þetta var ellefti opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023.
Fundarefnið var Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis.
Framsögumenn voru þeir sr. Geir Waage og sr. Halldór Gunnarsson.
Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.
Stefnumálin eða hugmyndir Málfundafélagsins eru einkum unnar upp úr fundum félagsins og er ætlað að hvetja til umræðu í aðdraganda Alþingiskosninganna 2024. Öllum framboðum og einstaklingum verður heimilt að nýta hugmyndir sem koma fram í stefnunni og bregðast við þeim á fundinum. Í lok fundar var tillaga um hugmyndir Málfundafélagsins, með þeim breytingum sem gerðar voru á henni á fundinum, borin upp og samþykkt samhljóða.
Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu þess sem talar og ýta síðan á spilarann.
Tímalínur ræðumanna:
0:00:00  Ólafur Ísleifsson formaður framkvæmdanefndar0:03:38  Geir Waage framsögumaður0:39:05  Halldór Gunnarsson framsögumaður1:05:40  Valdimar Jóhannesson1:10:55  Halldór Gunnarsson1:12:57  Arnar Þór Jónsson1:18:00  Halldór Sigurþórsson1:21:27  Arndís Ósk Hauksdóttir1:28:35  Guðbjörn Jónsson1:33:00  Bryndís Geirsdóttir1:35:10  Guðrún Ágústa Ágústsdóttir1:39:28  Valdirmar Jóhannesson1:41:40  Guðbjörn Jónsson1:43:14  Arnar Þór Jónsson1:46:04  Halldór Gunnarsson1:47:09  Geir Waage2:03:14  Anna Björg Hjartardóttir fundarstjóri (Tillaga borin upp)
Folgen-ID: 1000677075254
GUID: d17e4b37-d5d2-4670-bed7-bc6f8fb34529
Erscheinungs­datum: 15.11.2024, 12:44:40

Beschreibung

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?
Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.
Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.
Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.
Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin.
Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga.
Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.

Apple Podcasts: Kundenrezensionen

Kein Eintrag